Alvotech og Fuji Pharma bæta fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við samstarf sitt á Japansmarkaði

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Fuji Pharma Co. Ltd. (Fuji) hafa gert samkomulag um að bæta ótilgreindri fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu sem Alvotech er með í þróun við samstarf fyrirtækjanna um markaðssetningu og sölu í Japan.

Samstarf okkar við Fuji hefur verið mjög árangursríkt. Það er því okkur mikil ánægja að auka samstarfið enn frekar. Nýverið tilkynntum við að sótt hefði verið um markaðsleyfi í Japan fyrir fyrstu fyrirhuguðu líftæknilyfjahliðstæðuna sem þróuð er í samstarfi fyrirtækjanna.

Róbert Wessman, stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech

Samstarf Alvotech og Fuji var upprunalega kynnt í nóvember 2018 og samkomulag um að auka við samstarfið kynnt í desember 2020 og febrúar 2022. Nær það nú til sjö fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða sem verða þróaðar og framleiddar af Alvotech en markaðssettar af Fuji fyrir Japansmarkað.

Aukið samstarf er í góðu samræmi við sameiginlegt markmið fyrirtækjanna, sem er að auka aðgengi að nauðsynlegum líftæknilyfjum í Japan, þar sem eftirspurn sjúklinga fer nú ört vaxandi.

Takayuki Iwai, forstjóri Fuji Pharma

Í október 2022 tilkynntu fyrirtækin að lögð hefði verið inn umsókn um markaðsleyfi fyrir fyrstu fyrirhuguðu líftæknilyfjahliðstæðuna hjá japanska heilbrigðis-, atvinnu- og velferðarráðuneytinu.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Alvotech.