Alvotech tryggir aðgengi að um 20 milljarða króna fjármögnun

Flokkur veðskuldabréfa stækkaður um 10,2 milljarða króna með aðkomu hóps nýrra stofnanafjárfesta

Alvotech eignast höfuðstöðvarnar í Vatnsmýri sem Alvotech leigði áður og fær viðbótarfjármögnun að fjárhæð u.þ.b. 2,3 milljarða króna með endurfjármögnun fasteignalána

Víkjandi lán frá Alvogen veitir aðgang að 7,3 milljörðum króna til viðbótar

Alvotech (First North: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði tryggt aðgengi að nýrri fjármögnun að fjárhæð tæplega 20 milljarðar króna, miðað við núverandi gengi krónunnar (136 milljónir Bandaríkjadala).

Fjármögnuninni er ætla að auka sveigjanleika og styður við áframhaldandi vöxt í þróun fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða fyrirtækisins.

Joel Morales, fjármálastjóri Alvotech

Alvotech hefur stækkað flokk veðskuldabréfa um 10,2 milljarða króna (70 milljónir Bandaríkjadala) með viðbótarfjárfestingu frá Farallon Capital Management, Sculptor Capital Management, Oaktree Capital Management, Lodbrok Capital og Morgan Stanley. Þessir skuldabréfaeigendur hafa einnig eignast áskriftarrétt að 2,5% af almennum hlutum í Alvotech. Áskriftarréttirnir munu falla niður ef Alvotech gerir samninga um aðra fjármögnun, í samræmi við skilmála skuldabréfanna.

Þá hefur Alvotech einnig tryggt aðgang að fjármögnun frá Alvogen, sem er einn stærsti hluthafi fyrirtækisins, með loforði um 7,3 milljarða króna víkjandi lán (50 milljónir Bandaríkjadala), sem einnig veitir rétt til að nýta áskriftarréttindi fyrir 4,0% af almennum hlutum í Alvotech. Áskriftarréttirnir falla niður ef Alvotech nýtir ekki fjármögnunina og gerir samninga um aðra fjármögnun í hennar stað, í samræmi við skilmála lánasamningsins, fyrir 15. desember n.k.

Eignarhald á höfuðstöðvunum færist til Alvotech

Eignarhald á höfuðstöðvum fyrirtækisins í Vatnsmýri sem áður var leigt flyst til Alvotech frá dótturfélagi Aztiq í skiptum fyrir breytilegt víkjandi skuldabréf að fjárhæð um 11,7 milljarðar króna (80 milljónir Bandaríkjadala). Aztiq er einn af stærstu hluthöfum Alvotech. Í tengslum við kaup á fasteigninni hefur verið gerður nýr lánasamningur við Landsbankann sem eykur fjármögnun Alvotech um u.þ.b. 2,3 milljarða króna (16 milljónir Bandaríkjadala) miðað við núverandi gengi krónunnar.

Ítarlegri upplýsingar eru í gögnum sem verða aðgengileg á vef Alvotech https://investors.alvotech.com/publicfilings, þar sem einnig eru birtir sem viðhengi þeir samningar sem vísað er til hér. Fréttatilkynninguna og lýsingu á þeim samningum sem um er að ræða ber að túlka í heild í samhengi við samningana sem birtir eru.

Nánari upplýsingar má finna á Alvotech.is og á ensku á Alvotech.com.