Aztiq og Innobic taka við Lotus Pharmaceutical og Adalvo

Aztiq II HoldCo er þar með orðinn leiðandi hluthafi í alþjóðlega lyfjafyrirtækinu Lotus Pharmaceutical og hefur eignast Adalvo að fullu. Aztiq, með Róbert Wessman í broddi fylkingar, annast rekstur Aztiq II HoldCo. Þá verður Róbert Wessman áfram stjórnarformaður Lotus og Adalvo.

Með samstarfinu verður til öflugt fjárfestateymi sem býr yfir viðamiklu tengslaneti um allan heim. Stefnir hið nýja félag á áframhaldandi þróun og vöxt Lotus og Adalvo á alþjóðavettvangi. Aztiq og Innobic búa sameiginlega yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af rekstri og uppbyggingu á lyfjafyrirtækjum sem á eftir að nýtast Lotus og Adalvo.

Ég er afar stoltur af því starfi sem unnið hefur verið bæði hjá Lotus og Adalvo og það er ánægjulegt að sjá hve þau hafa vaxið og dafnað að undanförnu.

Róbert Wessman stjórnarformaður Aztiq.

Lotus þróar, framleiðir og selur lyf í hátt í 150 löndum

„Ég vil nota tækifærið og þakka fráfarandi hluthöfum fyrir stuðningin við þær umbreytingar sem við höfum farið í bæði á Lotus og Adalvo á undanförnum árum. Þá vil ég bjóða nýja samstarfsaðila velkomna að borðinu en þeirra sérfræðiþekking á eftir að nýtast vel við frekar uppbyggingu á fyrirtækjunum og auka aðgengi sjúklinga að hágæða lyfjum um allan heim.“

Árið 2012 hóf Alvogen starfsemi sína í Asíu og tveimur árum síðar fjárfesti Alvogen í Lotus. Ávöxtun Alvogen síðan 2012 er að meðaltali 30% á ári til dagsins í dag. Samheitalyfjafyritækið Lotus hefur á sama tíma haslað sér völl á alþjóðavettvangi og lagt ríka áherslu á þróun, framleiðslu og dreifingu á hágæða krabbameinslyfjum og sértækum taugalyfjum. Fyrirtækið er með eigin sölustarfsemi í 10 löndum en hefur jafnframt samið við leiðandi lyfjafyrirtæki um heim allan sem annast sölu á lyfjum fyrirtækisins í um 130 löndum. Adalvo hefur annast alla samningagerð fyrir hönd Lotus í þeim löndum þar sem fyrirtækið er ekki með eigin sölustarfsemi.

Viðskiptasamningar Adalvo yfir 500 talsins

Adalvo er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem annast sölu og markaðsmál fyrir fyrirtæki sem ekki eru með eigin sölustarfsemi. Adalvo selur ekki undir eigin vörumerkjum heldur semur við leiðandi lyfjafyrirtæki um heim allan um að annast sölu og markaðsmál á viðkomandi lyfjum. Adalvo sérhæfir sig því í sölu á lyfjahugviti til annarra lyfjafyrirtækja og starfar eftir viðskiptamódeli sem kallast „viðskipti til fyrirtækja“ eða svokallað „business to business (B2B)“. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og hefur síðan þá vaxið mjög hratt. Viðskiptasamningar Adalvo frá stofnun þess eru um 500 talsins og á vörulista fyrirtækisins eru um 60 lyf. Adalvo er meðal þeirra lyfjafyrirtækja sem hafa vaxið hvað mest á sínu sviði á heimsvísu og er með viðskiptavini í yfir 100 löndum.

Markmið Lotus og Adalvo er að auka aðgengi sjúklinga að hágæða lyfjum á sanngjörnum verði. Með aðkomu PTT og Innobic verður lagt enn frekara kapp á að efla þróunarstarfsemi og vöruúrval Lotus og Adalvo og þannig halda áfram að greiða götuna og auka aðgengi fólks um allan heim að hágæða meðferð og lyfjum.

Ég er sannfærður um að samkeppnisforskot Lotus og Adalvo mun eflast til muna með þeirri sérfræðiþekkingu, yfirgripsmikla viðskiptaneti og trausta aðgengi að mörkuðum í Asíu sem verður til með samstarfinu við Innobic.

Róbert Wessman stjórnarformaður Aztiq.

Samstarfið kemur til með að styrkja og efla Lotus og Adalvo

Sala Lotus hefur vaxið um 25% á ári síðustu 7 árum og EBITDA um 40% á sama tímabili. Á sama tíma hefur Adalvo á skömmum tíma skilað gríðarlegum árangri og hefur fyrirtækið meðal annars annast alla samstarfssamninga við söluaðila vegna sölu á lyfjum fyrir Alvotech.

Ég er afar ánægður með samstarfið við Aztiq og þessi tímamót sem marka upphaf að frekara samstarfi í framtíðinni.

Dr. Buranin Rattanasombat, varaforseti nýsköpunar hjá PTT og stjórnarformaður Innobic (Asíu)

Innobic hefur skuldbundið sig til að rannsaka og þróa umbreytandi meðferð við ýmsum sjúkdómum og bæta aðgengi sjúklinga að lyfjum í Suðaustur-Asíu. Samstarfið kemur til með að styrkja og efla Lotus og Adalvo á svæðinu og styðja við uppbyggingu á sviði lýðheilsu- og lyfjaiðnaði í Taílandi og nærliggjandi löndum.