Aztiq selur lyfjafyrirtækið Adalvo

REYKJAVÍK OG LONDON – (18. JÚLÍ 2025) – Eignarhaldsfélagið Aztiq hefur selt lyfjafyrirtækið Adalvo til EQT, alþjóðlegs fjárfestingafélags sem stofnað fyrir rúmum 30 árum af Wallenberg fjölskyldunni í Svíþjóð. Aztiq stofnaði Adalvo árið 2018 og hefur það milligöngu um samninga milli lyfjafyrirtækja um skráningu og markaðssetningu samheitalyfja. Adalvo vinnur með meira en 170 lyfjafyrirtækjum í 140 löndum um allan heim og hjá því starfa um 280 manns.
Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður AztiqAdalvo á það sameiginlegt með öðrum fyrirtækjum sem ég hef stofnað að markmið þess er að mæta aukinni eftirspurn um allan heim eftir hagkvæmari hágæða lyfjum. Þegar við stofnuðum Adalvo árið 2018 var ætlunin að gjörbylta mikilvægu sviði innan lyfjaiðnaðarins. Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri sem Adalvo og stjórnendur þess hafa náð á skömmum tíma og óska EQT til hamingju með að eignast þetta frábæra félag. Adalvo mun halda áfram blómstra með þeirra stuðningi. Ég hlakka til samstarfsins við EQT sem minnihlutaeigandi og að stuðla að áframhaldandi vexti Adalvo.
Matteo Thun, meðeigandi í EQTAdalvo hefur vaxið mjög hratt og þegar náð afar sterkri stöðu á sínu sviði. Adalvo teymið hefur sannað að það getur brugðist hratt við nýjum aðstæðum og tekist á við verkefni af öllum stærðum og gerðum. Við erum mjög hrifin af þeim árangri sem Róbert Wessman hefur náð sem eigandi Adalvo og fögnum því að hann sé tilbúinn að taka áfram þátt í þessari vegferð sem minnihlutaeiga
Anil Okay, forstjóri AdalvoVið erum afar spennt fyrir því að vinna með EQT, sem hefur náð frábærum árangri í fjárfestingum á heilbrigðissviði. Stefna EQT fellur ákaflega vel að metnaðarfullum áformum Adalvo um aukinn vöxt á komandi árum.
Fjárfestingabankinn Jefferies var ráðgjafi Aztiq við söluna og lögfræðistofan Hogan Lovells veitti lögfræðilega ráðgjöf. Fjárfestingin er háð hefðbundnum fyrirvörum og er gert ráð fyrir að viðskiptunum verði lokið á síðari helmingi ársins.
Upplýsingar fyrir fjölmiðla
Um Aztiq
Aztiq er eignarhaldsfélag, stofnað af Róberti Wessman, sem fjárfestir í lausnum á heilbrigðissviði. Markmið félagsins er að stuðla að framförum og aukinni hagkvæmni í heilbrigðisþjónustu um allan heim. Hjá Aztiq starfa þaulreyndir frumkvöðlar með djúpa þekkingu og áratuga reynslu af rekstri í lyfjageiranum. Þessi reynsla og sveigjanleg nálgun við úrlausn verkefna gerir félaginu kleift að ná marktækum árangri. Aztiq hefur þannig jákvæð áhrif og bætir líf og heilsu fólks um alla veröld.