Hluthafafundur til að leita samþykkis á samruna við Alvotech

Alvotech Holdings S.A. („Alvotech“) og sérhæfða yfirtökufélagið Oaktree Acquisition Corp. II („OACB“) tilkynntu í dag að boðað sé til hluthafafundar í OACB þar sem tillaga um áætlaðan samruna félaganna verður borin upp til samþykktar. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 7. júní 2022 kl. 14 að íslenskum tíma. Hluthafar geta tekið þátt í fundinum á vefnum eða í eigin persónu á skrifstofu lögmannsstofunnar Kirkland & Ellis við Lexingtontröð 601, 50. hæð, í New York. Eigendur almennra A og B hluta í OACB við lok viðskipta á viðmiðunardeginum 22. mars 2022 eiga rétt á að vera boðaðir á hluthafafundinn og fara með atkvæðisrétt.

Bandaríska verðbréfaeftirlitið („SEC“) hefur tekið við og staðfest gildistöku endanlegrar skráningar­lýsingar á eyðublaði F-4 sem félögin lögðu inn til samþykktar vegna hins áætlaða samruna og töku verðbréfa til viðskipta. OACB hefur jafnframt lagt inn samrunagögn til SEC og mun byrja að senda hluthöfum gögnin fyrir hluthafafundinn um 12. maí n.k. Nánari upplýsingar um samruna félaganna má finna á heimasíðu Alvotech.

Gert ráð fyrir að hlutir í Alvotech verði teknir til viðskipta á NASDAQ

Hvert atkvæði skiptir máli og OACB hvetur alla hluthafa til að láta rödd sína heyrast með því að greiða atkvæði rafrænt eða bréflega eins fljótt og auðið er, án tillits til eignarhluta viðkomandi. Ef tillögurnar sem bornar verða undir hluthafafundinn eru samþykktar, er gert ráð fyrir að samruna félaganna ljúki um eða upp úr 15. júní 2022, að uppfylltum öðrum skilyrðum fyrir viðskiptunum. Þegar samruna félaganna er lokið er gert ráð fyrir að hlutir í Alvotech verði teknir til viðskipta á NASDAQ verðbréfamarkaðnum í New York og FirstNorth markaðnum í Reykjavík, undir nýja auðkenninu „ALVO“. Þá munu áskriftarréttindi í félaginu verða tekin til viðskipta undir nýja auðkenninu „ALVOW“, á NASDAQ markaðnum.

Tengill fyrir fjölmiðla:
Alvotech, samskiptasvið

Benedikt Stefánsson
Netfang: benedikt.stefansson@alvotech.com