Róbert Wessman tekur við forstjórastól Alvotech

Mark Levick, forstjóri Alvotech hefur ákveðið að biðjast lausnar og Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi, tekur við stöðu forstjóra. Hafrún Friðriksdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar fyrir lyfjafyrirtækið Teva, tekur við sem framkvæmdastjóri rekstrar. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023.

Alvotech hefur tilkynnt breytingar á yfirstjórn fyrirtækisins. Mark Levick, forstjóri hefur ákveðið að biðjast lausnar og Róbert Wessman, starfandi stjórnaformaður og stofnandi tekur við stöðu forstjóra. Hafrún Friðriksdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar fyrir Teva, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar. Breytingarnar taka gildi 1. janúar n.k.

„Alvotech heldur áfram að aðlaga sig að örum vexti fyrirtækisins“, segir Róbert Wessman, starfandi stjórnarformaður Alvotech. Fyrirtækið hefur undanfarin ár lagt áherslu á fjárfestingar í aðstöðu, þróunar- og rannsóknarvinnu en áherslan færist nú yfir í lyfjaframleiðslu.

Til að geta þjónað mörgum alþjóðlegum mörkuðum samhliða erum við auka framleiðslugetu fyrirtækisins.

Róbert Wessman, starfandi stjórnarformaður

Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið að vera hluti af vegferð Alvotech á spennandi skeiði í sögu þess. Ég varð þess aðnjótandi að vinna með einstaklega einbeittum og hæfileikaríkum samstarfsfélögum, í öllum deildum fyrirtækisins, til að innleiða lyfjaframleiðslu á fullum afköstum og. bæta aðgengi sjúklinga að hagstæðum líftæknilyfjum. Þetta hefur verið hápunktur ferils míns í lyfjaiðnaðinum

Mark Levick, forstjóri Alvotech

Ég vil þakka Mark fyrir framlag hans til Alvotech á þessu vaxtarskeiði og ánægður að við fáum að njóta áfram þekkingar hans, þar sem hann hefur samþykkt að leiða vísindaráð félagsins.

Róbert Wessman, starfandi stjórnarformaður Alvotech

Nýr framkvæmdastjóri rekstrar

Hafrún Friðriksdóttir, sem áður var framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar fyrir Teva, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar.

Það er mér sérstök ánægja að bjóða Hafrúnu velkomna í Alvotech teymið. Hún hefur getið sér gott orð í lyfjaiðnaðinum fyrir einstaka forystuhæfileika.

Öflugur talsmaður fjölbreytni og jafnréttis

Hafrún Friðriksdóttir var ábyrg fyrir öllum rannsóknum og þróunarverkefnum alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Teva (Executive Vice President and Head of Global R&D) frá árinu 2017 þar til fyrr á þessu ári. Hún var einnig framkvæmdastjóri alþjóðlegra rannsókna og þróunar há Allergan, áður Actavis, þar til fyrirtækið sameinaðist Teva árið 2016. Hjá Teva stjórnaði Hafrún allri lyfjaþróun fyrirtækisins, á sviði frumlyfja, samheitalyfja og líftæknilyfjahliðstæða.

Hún bar þannig ábyrgð á þróun um 1.000 samheitalyfja á hverjum tíma, auk tuga frumlyfja og líftæknilyfjahliðstæða. Undir Hafrúnu heyrðu um 3.500 starfsmenn alþjóðlega í rannsóknum, þróun, lyfjagát, auk samskipta við heilbrigðisstarfsfólk og eftirlitsstofnanir. Hafrún er með doktorspróf í eðlislyfjafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur verið öflugur talsmaður fjölbreytni og jafnréttis í lyfjaiðnaðinum og hlaut fyrr á þessu ári viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir að hafa verið konum sérstök hvatning og fyrirmynd.

Róbert gegnir forstjórastöðunni samhliða stjórnarformannshlutverkinu

Róbert Wessman mun gegna stöðu forstjóra Alvotech, samhliða núverandi stjórnarformannshlutverki. Róbert stofnaði Alvotech árið 2013 og hefur verið stjórnarformaður frá árinu 2019. Róbert var forstjóri Actavis, sem undir hans stjórn varð að einu stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Að því búnu stofnaði hann Alvogen og undir hans forystu sem stjórnarformaður og forstjóri óx það úr því að vera verktaki í framleiðslu í eitt af stærstu alþjóðlegu samheitalyfjafyrirtækjunum. Róbert er jafnframt einn af stofnendum og stjórnaformaður Aztiq Group. Hann er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.