Viðskipti með hlutabréf Alvotech hefjast á Nasdaq

Hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni í New York fimmtudaginn 16. júní 2022. Bréfin eru skráð undir auðkenninu ALVO og áskriftarréttindi undir auðkenninu ALVOW.

Lokið er samruna Alvotech við sérhæfða yfirtökufélagið Oaktree Acquisition Corp. II („OACB“), sem stofnað var af dótturfélagi Oaktree Capital Management, L.P. („Oaktree“). Við samrunann, sem samþykktur var af hluthöfum OACB 7. júní 2022, varð til sérhæft alþjóðlegt fyrirtæki sem skráð er á markað og einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja, en það er sá geiri lyfjamarkaða um allan heim sem er í einna örustum vexti.

Við upphaf viðskipta er gert ráð fyrir að Alvotech verði eina íslenska fyrirtækið sem skráð er á markað í Bandaríkjunum. Jafnframt er stefnt að því að bréf í Alvotech verði tekin til viðskipta á NASDAQ First North Growth markaðnum í Reykjavík frá og með 23. júní 2022, en það yrði í fyrsta sinn sem bréf í íslensku fyrirtæki eru skráð samtímis til viðskipta í á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum og á Íslandi.

Skráning á markað er söguleg stund í vaxtarferli Alvotech. Við teljum að með þessu skrefi náum við að efla stöðu okkar á markaði fyrir líftæknihliðstæðulyf og veita samstarfaðilum okkar og sjúklingum um allan heim enn betri þjónustu.

Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech.

Frá stofnun fyrirtækisins fyrir áratug, hefur Alvotech byggt upp sérhæfða hátæknimiðstöð með allri aðstöðu á einni hendi til þróunar- og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja á stórum skala. Líftæknihliðstæðulyf hafa sömu klínísku virkni og líftæknilyf, sem hafa reynst vel til meðferðar við fjölda sjúkdóma og eru sá hluti lyfjamarkaðarins sem vex einna hraðast. Kostnaður við líftæknilyf er um 40% af heildarútgjöldum vegna lyfja í Bandaríkjunum og um 30% í Evrópu, miðað við listaverð. Alvotech þróar átta líftæknihliðstæður, sem geta nýst til meðferðar við fjölda sjúkdóma. Markaður fyrir viðmiðunarlyf þessara hliðstæða er áætlaður rúmlega 11.050 milljarðar króna (85 milljarðar Bandaríkjadala), á ári.

Oaktree er afar stolt af því að vinna með Alvotech, sem hefur byggt upp aðstöðu á heimsmælikvarða og einbeitir sér að því mikilvæga verkefni að auka framboð af bráðnauðsynlegum lyfjum með lægri tilkostnaði. Við lítum björtum augum á áframhaldandi samstarf við Alvotech, sem nú eykur umsvif sín enn frekar.

Howard Marks, einn af stofnendum og stjórnarformönnum Oaktree.

Fyrsta vara Alvotech á markaði er AVT02 (adalimumab), líftæknilyfjahliðstæða við Humira®. Sala og dreifing er hafin í Kanada og Evrópu og er gert ráð fyrr að hún hefjist í Bandaríkjunum 1. júlí 2023. Á Bandaríkjamarkaði hefur fyrirtækið sótt um að lyfið verði skráð með útskiptanleika, þannig að sjúklingar geti fengið lyf Alvotech í stað frumlyfsins án þess að læknirinn sem ávísar lyfinu þurfi að taka þá ákvörðun sérstaklega. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) tók umsóknina til greina á síðasta ári. Nýlega kynnti fyrirtækið einnig niðurstöður klínískrar rannsóknar og rannsóknar á lyfjamörkum AVT04 (ustekinumab), sem er líftæknilyfjahliðstæða við Stelara®.

Til að ná fótfestu á öllum helstu markaðssvæðum, hefur Alvotech gert samninga við samstarfsaðila með ráðandi stöðu og sérþekkingu á einstökum mörkuðum. Þar á meðal er Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceuticals Industries Ltd. (skráð í NYSE og TASE kauphöllunum sem TEVA), sem sinnir markaðssetningu í Bandaríkjunum, STADA Arzneimittel AG í Evrópu og Fuji Pharma Co., Ltd (skráð á TSE í London sem 4554) í Japan.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Alvotech.